Dótarímur Þórarins Eldjárns eru nýr rímnaflokkur handa börnum á öllum aldri. Rímurnar eru tíu talsins, hver og ein snýst um tiltekið dót eða leikföng. Þar gengur á ýmsu og flest reynist dótið frekar misheppnað. Allt þar til kemur að níundu rímu sem fjallar um bækur og í beinu framhaldi svo tíunda og síðasta ríman en þar birtist loks besta dót sem við eigum.

Þórarinn M. Baldursson hefur gert einstaklega skemmtilegar myndir við rímurnar.

Gullbringa gefur út.